Kraftlyftingaskólinn

Um þjálfara

Reyndir keppendur og þjálfarar sem leggja áherslu á styrk, rétta tækni og markvissa framvindu.

Júlían J. K. Jóhannsson, þjálfari hjá Kraftlyftingaskólanum

Skólastjóri og stofnandi

Júlían J. K. Jóhannsson

Júlían J. K., skólastjóri og stofnandi Kraftlyftingaskólans, hefur æft og keppt í kraftlyftingum síðan 2008. Hann hefur náð góðum árangri og meðal annars orðið heimsmeistari og Evrópumeistari unglinga, unnið til bronsverðlauna í opnum flokki karla þrívegis og á heimsmet í réttstöðulyftu, 405,5 kg.

Júlían varð Íþróttamaður ársins árið 2019 og hefur sinnt þjálfun bæði á námskeiðum og í einka- og fjarþjálfun þar sem áhersla er lögð á styrk, rétta tækni og að forðast meiðsli.

Júlían býður upp á kraftlyftinga- og styrktarþjálfun í appi Kraftlyftingaskólans.

Guðfinnur Snær, þjálfari hjá Kraftlyftingaskólanum

Kraftlyftinga- og styrktarþjálfari

Guðfinnur Snær

Guðfinnur Snær býr yfir mikilli reynslu og þekkingu í kraftlyftingum. Hann hóf sinn feril rétt orðinn 14 ára gamall og býr því yfir mikilli reynslu sem keppandi og þjálfari.

Guðfinnur hefur hlotið titlana Kraftlyftingamaður ársins hjá Kraftlyftingasambandinu og Kraftlyftingamaður Breiðabliks og á fjölda Íslandsmeta í kraftlyftingum. Hann hefur keppt á Evrópu- og heimsmeistaramótum í unglingaflokki sem og fullorðinsflokki með mjög góðum árangri.

Guðfinnur býður upp á kraftlyftinga- og styrktarþjálfun í appi Kraftlyftingaskólans.

Helgi Briem, þjálfari hjá Kraftlyftingaskólanum

Kraftlyftinga- og styrktarþjálfari

Helgi Briem

Helgi Briem hefur æft og þjálfað kraftlyftingar í yfir tuttugu ár. Hann hefur keppt reglulega á þeim tíma með góðum árangri og keppt á Evrópumeistaramóti öldunga.

Helgi hefur tekið á móti byrjendum sem og lengra komnum og kennt réttu handtökin í Lyftingadeild Ármanns, ásamt því að vera duglegur í félagsstörfum innan deildarinnar og var lengi formaður hennar.

Helgi býr einnig yfir grunni úr karate og sundi sem hann stundaði hvort tveggja lengi. Hann býður upp á kraftlyftinga- og styrktarþjálfun í appi Kraftlyftingaskólans.

Gunnar Pálmi Snorrason, þjálfari hjá Kraftlyftingaskólanum

Kraftlyftinga- og styrktarþjálfari

Gunnar Pálmi Snorrason

Gunnar Pálmi er efnilegur keppandi og þjálfari úr röðum Ármenninga. Hann hefur keppt á Norðurlandamótum og Íslandsmótum með eftirtektarverðum árangri.

Gunnar hefur sinnt ungmennaþjálfun og þjálfun fatlaðra, meðal annars fyrir Öspina, Íþróttafélag fatlaðra.

Gunnar býður upp á kraftlyftinga- og styrktarþjálfun í appi Kraftlyftingaskólans.